Mannlegi þátturinn

Áfengisvarnir, sorgarleyfi og ráðleggingar um mataræði

Árni Guðmundsson, formaður Foreldrasamtaka gegn áfengisauglýsingum, segir áfengisvarnarsamtök eiga í vök verjast þegar markaðsöflin eru annars vegar en líka vegna minna renni til forvarnarstarfs en áður. Árni komst í fréttirnar í fyrra þegar hann gagnrýndi viðbragðsleysi og seinagang lögreglu eftir hafa sjálfur kært sig til lögreglu fyrir ólögleg áfengiskaup á netinu árinu áður. Hann sagði frá starfi samtakanna og málþingi sem þau standa fyrir 16. júní í þættinum.

Alþingi samþykkti í síðustu viku frumvarp Ingu Sæland félagsmálaráðherra um breytingar á lögum um sorgarleyfi. Lögin fela í sér aukinn rétt foreldra til sorgarleyfis og er ætlað styrkja stöðu barna og barnafjölskyldna sem verða fyrir áföllum. Hólmfríður Anna Baldursdóttir, stjórnarformaður Gleym mér ei styrktarfélags, og Kolbrún Tómasdóttir, framkvæmdastjóri félagsins, ræddu þessar breytingar og sögðu frá félaginu Gleym mér ei.

Meirihluti landsmanna fer ekki eftir ráðleggingum í matarræði og breytingar á ráðleggingum sem fela meðal annars í sér minni neyslu á rauðu kjöti og meiri neyslu á grænmeti og ávöxtum hafa fengið blendin viðbrögð. Kolbrún Sveinsdóttir, matvælafræðingur og verkefnastjóri hjá MATÍS, fór yfir hvers vegna fólki er ráðlagt borða minna af rauðu kjöti og af hverju hafa kjötneytendur átt undir högg sækja undanförnu.

Tónlist í þættinum:

Good vibrations / Beach Boys

My Body's A Zombie For You / Dead Man's Bones

Lifa af / Bríet og Birnir.

Umsjón: Guðrún Hálfdánardóttir og Helga Arnardóttir.

Frumflutt

12. júní 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Mannlegi þátturinn

Mannlegi þátturinn

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.

netfang: mannlegi@ruv.is

Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

Þættir

,