Mannlegi þátturinn

Myrkur Games með nýjan tölvuleik í sumar, Veðurspjallið og lesandi vikunnar María Elísabet Bragadóttir

Fyrsti tölvuleikur íslenska tölvuleikjafyrirtækisins Myrkur Games sem nefnist Echoes of the End eða Bergmál endalokanna í lauslegri þýðingu er koma út í sumar eftir átta ára þróunarvinnu. Leikurinn er fyrsti sem fyrirtækið framleiðir og sameinar spennandi bardagakerfi, fjölbreyttar þrautir, og hjartnæma sögu í fantasíuheimi sem sækir innblástur í íslenskt landslag. Aldís Amah Hamilton leikkona leikur aðalhetju leiksins og sagði frá honum ásamt Magnúsi Guðrúnarsyni, handritshöfundi, sem býr til heiminn.

Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur kom í Veðurspjallið og talaði um hvernig veðrið getur haft áhrif á tómstundir sumri, golfið, hlaupa-og hjólreiðafólk og íþróttamót barna og ungmenna. Hann ræddi líka um hvort frostnætur undanförnu hafi áhrif á gróðurinn og veðurútlit næstu daga þar á meðal 17.júní sem er á næsta leiti.

Og lesandi vikunnar var María Elísabet Bragadóttir rithöfundur sem deildi með okkur bókunum sem hún hefur verið lesa og þeim sem hafa haft mest áhrif á hana. Hún sagði einnig frá því hvað er framundan hjá henni og hvernig viðtökurnar hafa verið við smásagnasafni hennar Herbergi í öðrum heimi sem er koma fyrir augu lesenda erlendis auk þess sem smásagnasafn hennar Sápufuglinn var tilnefnd til Bókmenntaverðlauna Evrópusambandsins í fyrra og hlaut þar sérstaka viðurkenningu.

Tónlist í þættinum í dag:

Everybody´s Talking / Harry Nilsson

Fragile / Sting

Don´t stop / Fleetwood Mac

UMSJÓN HELGA ARNARDÓTTIR OG FANNEY BIRNA JÓNSDÓTTIR

Frumflutt

10. júní 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Mannlegi þátturinn

Mannlegi þátturinn

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.

netfang: mannlegi@ruv.is

Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

Þættir

,