• 00:06:14Arnar Ásgeirss. - skúlptúrverk sem vísa á bata
  • 00:30:10Kristín Hulda Gíslad. - lesandi vikunnar

Mannlegi þátturinn

Arnar Ásgeirsson og skúlptúrarnir og Kristín Hulda lesandinn

Sex skúltpurverk eftir Arnar Ásgeirsson myndlistarmann voru valin úr fjölda hugmynda í samkeppni um listaverk í nýbyggingu Grensáss- endurhæfingardeildar LSH fyrir skömmu. Skúlptúrarnir mynda form sem gætu líkst framfaraferli. Þeir sýna örvar sem liðast út og suður, taka dýfur, kollsteypast en vísa upp á endanum. Örvarnar sýna bataleiðin er ekki endilega stöðug eða bein. Arnar þekkir þetta af eigin raun eftir hafa slasast í fyrra og eru verk hans innblásin af þeim langa tíma sem tók bata og fullri líkamlegri færni. Arnar var gestur þáttarins í dag.

Lesandi vikunnar í þetta sinn var Kristín Hulda Gísladóttir sálfræðingur hjá Ljósinu, stuðnings- og endurhæfingarmiðstöð fyrir krabbameinsgreinda. Hún sagði frá því hvaða bækur hún hefur verið lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. Kristín talaði um eftirafarandi bækur og höfunda:

With the end in mind: dying, death, and wisdom in the age of denial e. Katheryn Mannix

Just kids e. Patti Smith

Cosmos e. Carl Sagan

The Bell Jar e. Sylvia Plath

Tónlist í þættinum í dag:

Og þess vegna erum við hér í kvöld / Fjallabræður (Magnús Þór Sigmundsson)

Sama sól / Sigurður Halldór Guðmundsson (Sigurður Halldór Guðmundsson)

Veldu stjörnu / Ellen Kristjánsdóttir og John Grant (Ellen Kristjánsdóttir, texti Bragi Valdimar Skúlason)

UMSJÓN GUNNAR HANSSON OG HELGA ARNARDÓTTIR

Frumflutt

2. júní 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Mannlegi þátturinn

Mannlegi þátturinn

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.

netfang: mannlegi@ruv.is

Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

Þættir

,