• 00:04:51Sigríður Dögg og Freyja - staða fjölmiðla
  • 00:33:21Gunnar L. Friðrikss. - lama á leið til landsins

Mannlegi þátturinn

Erfið staða fjölmiðla á Íslandi og tíbetskur lama á leiðinni til landsins

Ísland skipar 17.sætið á heimsvísu þegar kemur frelsi fjölmiðla á meðan Noregur trónir á toppnum níunda árið í röð samkvæmt nýlegri úttekt samtakanna Blaðamenn án landamæra. Er fækkun og hnignun fjölmiðla undanfarin ár um kenna eða er versnandi samband milli stjórnmálafólks og fjölmiðla ástæða þessarar niðurstöðu, í samanburði við hin Norðurlöndin? Formaður Blaðamannafélags Íslands, Sigríður Dögg Auðunsdóttir og Freyja Steingrímsdóttir, framkvæmdastjóri félagsins, komu í þáttinn í dag og ræddu þetta ásamt því greina frá niðurstöðum svokallaðs Lausnamóts sem haldið var á vegum félagsins með fólki úr blaðamannastétt og öðrum stéttum samfélagsins til leita lausna við þeim vanda sem steðjar íslenskum fjölmiðlum.

Við fræddumst svo um það hvað þarf leggja á sig til verða lama, eða andlegur kennari í Tibet búddisma, en Ringu Tulku er einmitt hátt settur tíbetskur lama og er á leiðinni til Íslands. Gunnar L. Friðriksson kom til okkar í dag en hann er í Félagi tíbetbúddista á Íslandi og sagði frá Ringu Tulku og Hugleiðslu- og friðarmiðstöðinni í þættinum.

Tónlist í þættinum í dag:

Tætum og tryllum / Stuðmenn (Jakob Frímann Magnússon)

Þorparinn / Pálmi Gunnarsson (Magnús Eiríksson)

Þúsund sinnum segðu / Grafík (Helgi Björnsson)

UMSJÓN GUNNAR HANSSON OG HELGA ARNARDÓTTIR

Frumflutt

28. maí 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Mannlegi þátturinn

Mannlegi þátturinn

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.

netfang: mannlegi@ruv.is

Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

Þættir

,