Mannlegi þátturinn

VÆB bræður á svið í kvöld, diskóball fyrir eldri borgara og veðurspjallið

VÆB bræðurnir tveir, Hálfdán og Mattías Mattíassynir stíga á Eurovisionsviðið í kvöld ásamt dönsurum og syngja lagið Róa. Þeir voru sérstaklega valdir til vera fyrstir af því stjórnendur keppninnar vildu kvöldið myndi byrja með miklu stuði. Fararstjóri íslenska hópsins er sem fyrr Felix Bergsson og við vorum með hann á línunni í dag og fengum nýjustu fréttir frá Basel.

Miðvikudagsbíó hefur verið vinsælt í vetur í Bíó Paradís, þessar sýningar voru hugsaðar fyrir eldra fólk, fólk sem vinnur á kvöldin og bara hvern sem vildi koma um miðjan dag í bíó. 28.maí verður lokaviðburður miðvikudagsbíósins með frumsýningu á gamanmynd og boðið verður upp á diskóball fyrir eldri borgara strax eftir sýninguna. Hrönn Sveinsdóttir, framkvæmdastjóri Bíó Paradísar, og Katrín Þorsteinsdóttir, dyggur aðdáandi miðvikudagsbíósins og kvikmynda yfir höfuð, komu til okkar og sögðu betur frá þessu í þættinum.

Svo kom Einar Sveinbjörnsson til okkar í veðurspjallið í dag. Í þetta sinn talaði hann um lýsingar á veðri, orðfæri og tungutak. Þ.e.a.s. hann bar saman hvernig veðrinu var lýst á 19.öld af Erlendi Björnssyni og hvernig það yrði orðað í dag og hvernig mun þetta mögulega þróast áfram inn í framtíðina. Svo rýndi Einar í langtímaútlitið út maí og jafnvel aðeins inn í júní.

Tónlist í þættinum í dag:

Never Ever Let You Go / Rollo and King (Sören Poppe, Stefan Nielsen og Thomas Brekling)

Róa (Jazz útgáfa) / VÆB (Hálfdán Helgi Matthíasson, Matthías Davíð Matthíasson, Gunnar Björn Gunnarsson og Ingi Þór Garðarsson)

Bara Bada Bastu / Kaj (Anderz Wrethov, Axel Åhman, Jakob Norrgård, Kevin Holmström, Kristoffer Strandberg, Robert Skowronski)

Calm After the Storm / The Common Linnets (Ilse Delange, JB Meijers, Rob Crosby, Matthew Crosby og Jake Etheridge)

UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Frumflutt

13. maí 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Mannlegi þátturinn

Mannlegi þátturinn

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.

netfang: mannlegi@ruv.is

Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

Þættir

,