• 00:05:23Helgi Pétursson - föstudagsgesturinn
  • 00:22:30Helgi Pé - seinni hluti
  • 00:36:28Matarspjallið - matur sem byrjar á emm

Mannlegi þátturinn

Helgi Pétursson föstudagsgestur og matur sem byrjar á emm

Helgi Pétursson, eða Helgi eins og hann er jafnan kallaður, kemur upprunalega úr Kópavoginum og hefur lengst af verið kenndur við Ríó Tríó, en þeir félagar stofnuðu hljómsveitina kornungir. Undanfarin ár hefur hann starfað fyrir Landsamband eldri borgara og hefur látið sér kveða á þeim vettvangi, en er hætta störfum sem framkvæmdastjóri sambandsins. Við buðum Helga velkomin sem föstudagsgest og fórum með honum yfir það helsta eftir þessi fjögur ár hjá LEB, svo fórum við aftur í tímann og hann rifjaði upp hvernig hann og Ólafur Þórðarson byrjuðu spreyta sig á tónlist og söng fyrir 10 ára aldur. Svo fengum við vita hvað er framundan hjá Helga.

Í matarspjalli dagsins ákváðum við tala um mat sem byrjar á M af því er maímánuður nýhafinn. Maís, mangó, marhnútur og marengs til dæmis. Við fengum ábendingar frá hlustendum og rifjuðum upp erfiða lífsreynslu tengda keppni í marengstertugerð.

Tónlist í þættinum í dag:

Alltaf einn / Ríó tríó (Gunnar Þórðarson, texti Jónas Friðrik Guðnason)

Þegar hjartað segir frá / Ríó tríó (Gunnar Þórðarson, texti Jónas Friðrik Guðnason)

Létt / Ríó tríó (Gunnar Þórðarson, texti Jónas Friðrik Guðnason)

UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Frumflutt

2. maí 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Mannlegi þátturinn

Mannlegi þátturinn

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.

netfang: mannlegi@ruv.is

Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

Þættir

,