• 00:06:49Hafliði Ragnarsson - föstudagsgestur
  • 00:24:26Hafliði Ragnarsson - seinni hluti
  • 00:40:40Matarspjallið - þýskur matur

Mannlegi þátturinn

Hafliði Ragnarsson föstudagsgestur og þýskt matarspjall

Flestum þykir gott súkkulaði og sætabrauð og föstudagsgesturinn okkar í dag, hreinlega lifir af því búa til þetta tvennt fyrir sína kúnna. Viðkomandi er bakari og hefur sérhæft sig í súkkulaðinu og ber jafnvel titilinn súkkulaðimeistari. Hafliði Ragnarsson var föstudagsgesturinn okkar en bakaríið hans er Mosfellsbakarí og var stofnað af foreldrum hans og föðurbróður 1982 og eftir Hafliði heim frá námi í Danmörku og Frakklandi tók hann við framleiðslustjórn og hóf framleiða eðalsúkkulaði undir eigin nafni HR konfekt. Við kynntumst Hafliða betur í þættinum, fórum með honum aftur í tímann í sveitina fyrir austan og vestur á Patreksfjörð, frægðardraumana, trommuleikinn og svo auðvitað súkkulaðið.

Matarspjallið var ekki á sömu sætu nótunum því eftir við kvöddum Hafliða tók Sigurlaug Margrét við, ströng á svip, því við flettum í gegnum litlar bækur sem okkur bárust, um þýskan mat. Schnitzel, Pretzel, Currywurst, Bratwurst og fleira í þýsku matarspjalli í dag.

Tónlist í þættinum í dag:

Fólkið í blokkinni / Eggert Þorleifsson (Ólafur Haukur Símonarson)

Careless Memories / Duran Duran (Andy Taylor, John Taylor, Nick Rhodes, Roger Taylor og Simon le Bon)

Does Your Mother Know / ABBA (Benny Andersson og Björn Ulvaeus)

UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Frumflutt

14. mars 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Mannlegi þátturinn

Mannlegi þátturinn

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.

netfang: mannlegi@ruv.is

Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

Þættir

,