• 00:08:51Erla Skúladóttir - föstudagsgestur í New York
  • 00:22:56Erla Skúladóttir - seinni hluti
  • 00:37:38Parísarmatarspjall

Mannlegi þátturinn

Erla Skúladóttir föstudagsgestur og Parísarmatarspjall

Föstudagsgesturinn Mannleg þáttarins í dag var leikonan, kvikmyndaleikstjórinn og þýðandinn Erla Skúladóttir sem búsett er í New York og hefur búið í þeirri borg í næstum fjóra áratugi. Erla útskrifaðist frá Leiklistarskóla Íslands árið 1982 og lék hjá Leikfélagi Reykjavíkur, Leikfélagi Akureyrar, Þjóðleikhúsinu, Alþýðuleikhúsinu, Egg leikhúsinu, Svörtu og sykurlausu götuleikhúsinu og Frú Emilíu áður en hún flutti vestur um haf. Hún vann þar sem aðstoðarkvikmyndatökukona fór svo í mastersnám í kvikmyndaleikstjórn og kvikmyndatöku í New York University. Erla hefur leikstýrt, skrifað handrit, tekið og klippt stuttmyndir og fleira. Í dag vinnur Erla við þýðingar af ýmsu tagi og veit ekkert skemmtilegra en þýða kvikmyndahandrit. Við slógum á þráðinn til Erlu til New York í dag.

Í matarspjalli dagsins vorum við á frönskum nótum og töluðum því um franskan mat í tilefni af því var nýkomin þaðan, úr kuldanum í París og þá kom franska lauksúpan sterk inn en hún er borin fram sjóðandi heit og kemur hita í kroppinn. Parísarmatur í matarspjalli dagsins.

Tónlist í þættinum í dag:

Vor í Vaglaskógi / Kaleo (Jónas Jónasson / Kristján frá Djúpalæk)

Here there and everywhere / Beatles (Lennon & Mcartney)

Wise Up / Aimee Mann (Aimee Mann)

UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Frumflutt

7. mars 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Mannlegi þátturinn

Mannlegi þátturinn

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.

netfang: mannlegi@ruv.is

Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

Þættir

,