Mannlegi þátturinn

G-vítamín, Quigong og Taiji og póstkort frá Magnúsi

Þorrinn er hafinn og eins og undanfarin ár standa landssamtökin Geðhjálp fyrir geðræktarátakinu G-vítamín á þorranum með það markmiði setja geðrækt á oddinn. Af því tilefni gefa þau út geðræktardagatal, svona borðdagatal upp á gamla mátann, þar sem er einn skammtur af G-vítamíni á hverjum degi á þorranum, sem sagt ráðlagður dagskammtur. Svava Arnardóttir, formaður Geðhjálpar, kom í þáttinn í dag og sagði okkur frá starfseminni og dagatölunum.

Við héldum svo áfram tala um heilsueflingu og úrval leiða til efla líkamlega og andlega heilsu. Í dag heyrðum við í Ólafi Guðmundssyni leikara og leiklistarkennara en hann kennir Qigong og Taiji. Hann fór til Tíbet og Kína síðasta sumar og við heyrðum af því og svo sagði hann okkur frá Qigong ot Taiji, en hann verður með námskeið í febrúar þar sem hann blandar þessu tvennu saman.

Við fengum svo póstkort í dag frá Magnúsi R. Einarssyni. Það hefur verið ótíð undanförnu í Vestmannaeyjum og víst er brælurnar verða fleiri og fleiri. Veðurfarið hefur truflandi áhrif á samgöngur eins og Magnús segir frá í póstkorti dagsins. En eyjamenn halda sínu striki hörkuduglegir hvort sem er í leik eða starfi. Magnús segir líka af ferðalagi sínu til Póllands í fyrrasumar og heimsókn til Auschwitz, en þar var þess minnst á mánudaginn áttatíu ár eru síðan úkraínskir hermenn Rauða hersins frelsuðu þá sem eftir lifðu í þessum alræmdu útrýmingarbúðum nazista.

Tónlist í þættinum:

Mambó / Haukur Morthens (Merril, texti Loftur Guðmundsson)

vera í sambandi / Stuðmenn (Tómas Magnús Tómasson, Valgeir Guðjónsson og Jakob Frímann Magnússon)

Léttur í lundu / Bítlavinafélagið (Karl Hermannsson)

On the Road Again / Canned Heat (Alan C Wilson & Floyd V Jones)

UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Frumflutt

29. jan. 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Mannlegi þátturinn

Mannlegi þátturinn

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.

netfang: mannlegi@ruv.is

Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

Þættir

,