• 00:06:39Gunnar og Lilja - Veislan, ný þáttaröð að hefjast
  • 00:33:51Ásta Sigrún - lesandi vikunnar

Mannlegi þátturinn

Veislan - ný þáttaröð og Ásta Sigrún lesandi vikunnar

Sjónvarpsþáttaröðin Veislan með Michelin matreiðslumanninum Gunnari Karli Gíslasyni og Sverri Þór Sverrissyni er hefja göngu sína á á RÚV um miðjan júní. Þetta er þriðja þáttaröðin sem unnin er og þessu sinni heimsækja þeir eyjar í kringum landið. Þetta eru eyjarnar Flatey í Breiðafirði og á Skjálfanda, Hrísey, Vigur og Heimaey. Þar hitta þeir fyrir heimamenn og elda með þeim kræsingar úr hráefni frá hverjum stað. Þau Lilja Jónsdóttir, leikstjóri og ein meðframleiðenda þáttanna, og Gunnar Karl sögðu okkur í þættinum frá Veislu sumarsins ásamt því ræða hvað verður um uppskriftirnar allar sem eru spunnar upp á þessum fallegu stöðum og sögurnar sem þau hafa fengið heyra á ferðalögunum.

Lesandi vikunnar í þetta sinn var Ásta Sigrún Magnúsdóttir, samskiptastjóri Garðabæjar. Við fengum hana til segja okkur hvaða bækur hún hefur verið lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. Ásta talaði um eftirfarandi bækur og höfunda:

Julie Chan is dead e. Liann Zhang

Kúnstpása e. Sæunni Gísladóttur

Bréf úr sjálfskipaðri útlegð e. Gunnlaug Magnússon.

Kvika e. Þóru Hjörleifsdóttur

Baldintáta e. Enid Blyton,

Sitjið Guðs Englar serían e. Guðrúnu Helgadóttur

Elías e. Auði Haralds

Peð á páhnetunni Jörð e. Olgu Guðrúnu Árnadóttur

Tónlist í þættinum í dag:

Ég er á leiðinni / Brunaliðið (Magnús Eiríksson)

Horfðu til himins / Nýdönsk (Jón Ólafsson, Daníel Ágúst Haraldsson, texti Daníel Ágúst Haraldsson)

Heimförin / Ásgeir Trausti (Ásgeir Trausti Einarsson, texti Einar Georg Einarsson)

UMSJÓN GUNNAR HANSSON OG HELGA ARNARDÓTTIR

Frumflutt

26. maí 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Mannlegi þátturinn

Mannlegi þátturinn

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.

netfang: mannlegi@ruv.is

Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

Þættir

,