• 00:06:12Gunnar Svanbergss. - glímir við lang-Covid
  • 00:37:36Eydís Blöndal - lesandi vikunnar

Mannlegi þátturinn

Gunnar Svanbergsson glímir enn við eftirköst Covid og Eydís Blöndal lesandi vikunnar

Gunnar Svanbergsson sjúkraþjálfari kom í þáttinn í dag, hann fékk Covid um jólin 2020, sem hann lýsti þá eins og bara ansi týpískri skítapest, en eftir hana var hann eiginlega alveg máttlaus og til gera langa sögu stutta þá er hann ekki enn þann dag í dag búinn jafna sig. Áður en hann veiktist var hann mikill útvistar- og ævintýramaður í toppformi. Nú, um það bil fjórum og hálfu ári eftir hann veiktist líkir hann því við hann þurfi klífa Everest, eða yfirþyrmandi hindrun, bara til komast fram úr rúminu og sér í kaffi. Við fengum Gunnar til segja okkur þessa erfiðu reynslusögu, hvernig ferlið hefur verið og hvernig útlitið er framundan.

Lesandi vikunnar í þetta sinn var Eydís Blöndal, hugmynda- og textasmiður og ljóðskáld. Við fengum vita hvaða bækur hún hefur verið lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. Eydís talaði um eftirfarandi bækur og höfunda:

The Vegetarian e. Han Kang

When Things Fall Apart e. Pema Chödrön

Límonaði frá Díafani e. Elísabetu Jökulsdóttur

Piranesi e. Susanna Clarke

I Who Have Never Known Men e. Jacqueline Harpman

Hús andanna e. Isabel Allende

Lovestar e. Andra Snæ Magnason

Tónlist í þættinum í dag:

Sól bros þín / Bubbi Morthens (Bubbi Morthens)

Sólarsamban / Rebekka Blöndal (Ásgeir Jón Ásgeirsson, texti Rebekka Blöndal og Stefán Örn Gunnlaugsson)

UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Frumflutt

19. maí 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Mannlegi þátturinn

Mannlegi þátturinn

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.

netfang: mannlegi@ruv.is

Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

Þættir

,