Mannlegi þátturinn

Umhirða legstaða, appið Lifetrack og umhverfisveikindi á Heilsuvaktinni

Kirkjugarðar Reykjavíkur bjóða aðstandendum og umsjónarfólki legstaða upp á fræðsludag á morgun í Fossvogskirkjugarði. Þar munu starfsmenn veita ráðgjöf um umhirðu legstaða og jafnvel einnig ráðleggingar sem gætu nýst í heimagörðum eða við sumarbústaðinn. Heimir Janusarson, garðyrkjufræðingur og starfsmaður Kirkjugarða Reykjavíkur, kom í þáttinn í dag og sagði okkur betur frá þessu og göngu sem hann mun leiða um Fossvogsgarð.

Fjölmargir Íslendingar hafa notað ýmis öpp til bæta lífstíl sinn með því til dæmis auðvelda sér jafnvægi næringarefna, efla hreyfingu og jákvætt hugarfar. Hjónin Ingi Torfi Sverrisson og Linda Rakel Jónsdóttir heilsu og markþjálfar standa á bak við nýtt íslenskt app á þessum nótum, Lifetrack, og við heyrðum í Inga Torfa í þættinum og fræddumst um það hvernig þetta virkar.

Töluverður fjöldi fólks upplifir svokölluð umhverfisveikindi sem koma oft til af myglu í húsnæði. Umhverfisveikindi geta orðið svo alvarleg fólk getur ekki búið eða unnið í húsnæðinu og verður fárveikt, orkulaust, þjakað af hausverkjum og mikilli vanlíðan. Linda Gunnarsdóttir sjúkraþjálfari og framkvæmdastjóri Heilsumiðstöðvarinnar Endurheimt er ein þeirra sem varð umbylta sínum lífstíl til heilsu á eftir erfið veikindi. Helga Arnardóttir ræddi við Lindu á Heilsuvaktinni í dag.

Tónlist í þættinum í dag:

Ég leitaði blárra blóma / Hörður Torfason (Hörður Torfason, texti Tómas Guðmundsson)

Átján rauðar rósir / Berti Möller og Lúdó og Stefán (Bobby Darrin, íslenskur texti Iðunn Steinsdóttir)

Garðurinn minn / Baggabandið (Magnús Þór Sigmundsson)

Matthew and Son / Cat Stevens (Yusuf/Cat Stevens)

UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Frumflutt

6. maí 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Mannlegi þátturinn

Mannlegi þátturinn

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.

netfang: mannlegi@ruv.is

Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

Þættir

,