Mannlegi þátturinn

Doktorsrannsókn Ingu, samantekt á fjármálaspjalli og Svala lesandi vikunnar

Þættir sem spá fyrir um flutning á hjúkrunarheimili og umönnunarbyrði aðstandenda, er heiti á doktorsritgerð sem Inga Valgerður Kristinsdóttir sérfræðingur í Heimahjúkrun varði í Hjúkrunarfræði við Hjúkrunar og ljósmóðurfræðideild Háskóla Íslands, fyrir 2 vikum. Doktorsrannsóknin hafði það markmiði varpa ljósi á þessa stöðu til greina hvernig mætti þróa heimaþjónustu til bregðast betur við þessum þörfum og styðja við eldra fólk til áframhaldandi búsetu á eigin heimili. Einnig er staðan hér á landi borin saman við nokkur lönd í Evrópu og niðurstaðan úr þeim samanburði er áhugaverð. Inga sagði okkur betur frá þessu í þættinum.

Í dag kom Georg Lúðvíksson til okkar í síðasta sinn í bili í það sem við höfum kallað fjármálin á mannamáli. Því leit hann yfir farinn veg með okkur í dag og fór aðeins aftur yfir það helsta sem hann hefur talað um síðastliðna mánudaga: sparnað, lífeyrissjóðsmálin, lánaumhverfið, vextina og fleira. Sem sagt samantekt á mannamáli með Georgi í dag.

Svo var það lesandi vikunnar, sem var í þetta sinn Svala Ísfeld Ólafsdóttir, dósent við lagadeild HR. Hún sagði okkur frá því hvað hún hefur verið lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. Svala talaði um eftirfarandi bækur og höfunda:

Rokið í stofunni e. Guðrúnu Jónínu Magnúsdóttur

Álfadalur e. Guðrúnu Jónínu Magnúsdóttur

A Very Private School e. Charles Spencer

Býr Íslendingu hér? e. Garðar Sverrisson

Hin hljóðu tár, ævisaga Ástu Sigurbrandsdóttur e. Sigurbjörgu Árnadóttur

Lífsstríðið, æviferð Margrétar Þórðardóttur e. Eirík Jónsson

Tónlist í þættinum í dag:

Velkomin heim / Haraldur Reynisson (Haraldur Reynisson)

Let It Be Me / The Everly Brothers (Mann Curtis, Pierre Delanoe)

It’s Only a Paper Moon / Perry Como (Billy Rose, Harlod Arlen & Yip Harburg)

UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Frumflutt

5. maí 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Mannlegi þátturinn

Mannlegi þátturinn

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.

netfang: mannlegi@ruv.is

Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

Þættir

,