Fríða Þorkelsdóttir bókmenntafræðingur og netblaðamaður Lestarinnar, fjallar um YouTube-stjörnuna MrBeast. Þó þú hafir kannski aldrei heyrt um hann þá heldur hann úti vinsælustu YouTube rás í heimi. En það er eitthvað undarlegt við hann.
Eiríkur Örn Norðdahl flytur pistil um sjálfa umræðuna og hvernig hún á það til að þróast. Svo ræðum við við Kjartan Orra Þórsson, Íranssérfræðing, um teiknimyndasöguna Persepólis (endurflutt frá desember 2024).
Birt
26. mars 2026
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lestin
Popp og pólitík
Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.