Á laugardagsmorgun hófu Bandaríkjamenn og Ísraelar loftárásir í Íran, og myrtu meðal annars æðstaklerk landsins, Ayatollah Ali Khamenei. Íranir hafa svarað með árásum á Ísrael, herstöðvar Bandaríkjanna og vinaþjóðir þeirra á svæðinu. En hvað mun gerast, mun hin óvinsæla klerkastjórn falla? Munu bandarískir hermenn ráðast inn í landið? Hvað þýðir þetta fyrir jafnvægið í alþjóðapólitíkinni? Við förum yfir þetta með Guðmundi Hálfdánarsyni, prófessor í sagnfræði.
Friða Þorkelsdóttir, bókmenntafræðingur og netblaðamaður Lestarinnar, veltir fyrir sér hnignun internetsins og ljósu punktunum sem enn má þar finna.
Birt
2. mars 2026
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lestin
Popp og pólitík
Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.