Lestin

Bob Dylan-bíómyndin, Church bro's pt.2, Hanna og Lára Lopez

á dögunum kom út leikin bíómynd um ævi Bob Dylan. Myndin A complete unknown er í leikstjórn James Mangold og byggir á blaðamennskubókinni Dylan Goes Electric! sem fjallar um það þegar Dylan stakk gítarnum sínum í samband við rafmagn á Newport folk festival, átökin í kringum þá umdeildu ákvörðun

Timothée Chalamet fer með aðalhlutverkið og er ómótstæðilegur sem andhetjan Dylan. Snorri Helgason kemur og ræðir myndina við Lóu og Kristján.

Á laugardaginn verður frumsýnd heimildarmyndin Hanna, She's a Rebel eftir mexíkósku kvikmyndagerðarkonuna Láru López. Myndin fjallar um Hönnu Pálsdóttur, 83 ára íslenska konu sem sneri lífi sínu við þegar hún hætti vinna sem bankastarfsmaður og innritaði sig í listaskóla til verða málari. Lára er gestur Lestarinnar í þætti dagsins, hún segir okkur nánar frá myndinni og lífi sínu á Íslandi en hún hefur búið hér á landi síðustu sex ár.

Við fylgjum eftir umfjöllun okkar fyrr í vikunni um aukna trúrækni ungra karlmanna af Z-kynslóðin. Við rýnum í tölur um kirkjusókn ungra karlmanna í nokkrum löndum.

Frumflutt

30. jan. 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Lestin

Lestin

Popp og pólitík

Umsjón: Kristján Guðjónsson, Lóa Björk Björnsdóttir og Anna Gyða Sigurgísladóttir.

Þættir

,