Lestin

Metnaðarfull skólahljómsveit og forn-grísk heimspeki

Árið 2005 kom út fyrsta platan með hljómsveit Benna Hemm Hemm, 12 laga plata samnefnd tónlistarmanninum. Síðan þá eru liðin 20 ár og Benni kennir tónlist í Hagaskóla, og Ingi Garðar Erlendsson, básúnuleikari í hljómsveitinni, stýrir þar skólahljómsveitinni, Skólahljómsveit Vesturbæjar og Miðbæjar, SVoM. Á laugardag ætla SVoM og benni leiða saman hesta sína og leika plötuna í heild sinni á tónleikum í Háskólabíó. Mér lék forvitni á vita hvernig indí-fólk krútttónlist fyrsta áratugarins færi ofan í unglinga dagsins í dag og kíkti niður í Hagaskóla.

Alkibíades var einhver alræmdasti stjórnmálamaður Grikklands til forna, einstaklega fagur, hrífandi og vel máli farinn. Hann leiddi Aþenu út í tilgangslaust stríð og endaði á því gera út af við lýðræðið í borgríkinu. Fyrir jól kom út íslensk þýðing á samræðunni Alkibíades eftir Platón, en þar segir frá fundi heimspekingsins Sókratesar og stjórnmálamannsins unga. Við ræðum við Hjalta Snæ Ægisson, bókmenntafræðing, þýðanda og bókaútgefanda.

Frumflutt

22. maí 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Lestin

Lestin

Popp og pólitík

Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.

Þættir

,