Lestin

Konungssinnar í Kísildal #3 - Borgarskipulagsfræðingurinn

Konungurinn lengi lifi, skrifaði Donald Trump um sjálfan sig á samfélagsmiðlum nýlega.

Frá því hann tók við embætti forseta í Janúar hefur hann unnið því gjörbylta bandarísku stjórnkerfi og samfélagi með suðurafríska tæknimógúlinn Elon Musk sér við hlið.

Hugmyndirnar sem þeir styðjast í niðurrifinu og uppbyggingu hins nýja samfélags hafa lengi verið bruggast í tæknigeiranum - og þær eru róttækari en marga grunar.

Lýðræðið er komið á endastöð, og Bandaríkin þurfa snjallan forstjóra sem stýrir samfélaginu eins og sprotafyrirtæki. Það þarf byggja upp einveldi, nýtt konungsdæmi, segja jafnvel sumir.

Næstu vikurnar ætlum við sökkva okkur ofan í þessar byltingarhugmyndir og hugsuðina á bakvið þær, konungssinnana í Kisildal.

Í þriðja þættinum fjöllum við um útópískar hugmyndir Kísildalsins, meðal annars Netríkið, Network State, sem Balaji Srinivasan hefur talað fyrir. Við ræðum meðal annars GAZA Inc, Prospera og tilraunir Praxis til kaupa Grænland.

Efni sem við notuðum við gerð þáttarins var meðal annars:

- The Network State: How to start a new country, bók eftir Balaji Srinivasan, aðgengileg á https://thenetworkstate.com/

Viðtöl, fyrirlestrar og blogg:

- Silicon Valley's ultimate exit (Balaji Srinivasan)- https://www.youtube.com/watch?v=n1kfVAX7WGU

- Competitive Government (Patri Friedman) - https://www.youtube.com/watch?v=MSO-ZAQiFAI&ab_channel=TheNetworkStatePodcast

- The World's first charter city (Paul Romer) - https://www.youtube.com/watch?v=30kPKxGuHLA

- Grænlandsþráður Dryden Brown á X - https://x.com/drydenwtbrown/status/1856424282823541099

- TradHumanism and building the future (Dryden Brown) - https://www.youtube.com/watch?v=9T5K2TGLfC8

- Gaza Inc. (Curtis Yarvin) - https://graymirror.substack.com/p/gaza-inc

- Pronomos Capital - https://www.pronomos.vc/portfolio

Umfjallanir um Network state hreyfinguna:

- Who Would Give This Guy Millions to Build His Own Utopia? - https://www.nytimes.com/2023/12/12/style/praxis-city-dryden-brown.html

- Crack-up capitalism, bók eftir Quinn Slobodian https://us.macmillan.com/books/9781250753892/crackupcapitalism/

Frumflutt

6. mars 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Lestin

Lestin

Popp og pólitík

Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.

Þættir

,