Grænlensk menning, grænlenskt leikhús og dómstóll götunnar
Pauliina Oinonen stýrir grænlensku listahátíðinni Suilaa, sem er haldin annað hvert ár í Nuuk. Við setjumst niður með henni í Katuaq menningarmiðstöðinni í Nuuk og veltum fyrir okkur listformum og stílum, þemum og umfjöllunarefnum í grænlenskri list.
Svo heyrum við stutt brot úr þættinum Elsta land í heimi, þar sem fjallað er um grænlenskt leikhús og sagnamennsku.
Á hugvísindaþingi á laugardag ætlar Gústav Adolf Bergmann Sigurbjörnsson, heimspekingur, að taka til varna fyrir dómstól götunnar í erindi sem hann kallar Vitnisburður, orðrómur, rógur. Gústav heimsækir Lestina og veltir því fyrir sér hvort eitthvað sé til sem heiti dómstóll götunnar og hvaða gagn sé þá af honum.
Birt
9. mars 2026
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lestin
Popp og pólitík
Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.