Lestin

Reykjavík 112, raftónlist um virkjanir, Elfar Logi segir sögur

Reykjavík 112 nefnist íslensk spennuþáttaröð á Sjónvarpi Símans. Þættirnir eru byggðir á bók Yrsu Sigurðardóttur. Brynja Hjálmsdóttir rýnir í þættina.

Elfar Logi Hannesson leikari og leikhússtjóri Komedíuleikhússins í Haukadal í Dýrafirði er væntanlegur til borgarinnar til setja upp einleikinn Ariasman í Tjarnabíói. Við hringjum vestur á Þingeyri og ræðum um leikhús, sögumennsku og einleiki.

Á laugardag kemur út raftónlistarplatan Vatn og Raf og á sama tíma opnar sýning með ljósmyndum sem prýða umslag og bækling plötunnar. Ljósmyndirnar og tónlistin mynda eina heild, en innblásturinn kemur frá íslenskum vatsnaflsvirkjunum. Svarthvítar ljósmyndirnar eru teknar í og við þessi miklu mannvirki og tónlistin notast meðal annars við hljóðupptökur innan úr virkjunum. baki þessu verki eru ljósmyndarinn Björgvin Sigurðarson og tónlistarmennirnir Jóhannes Birgir Pálmason og Árni Grétar Jóhannesson, betur þekktur sem Futuregrapher - en Árni féll frá í byrjun árs.

Frumflutt

14. maí 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Lestin

Lestin

Popp og pólitík

Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.

Þættir

,