Lestin

Maríuklefi Eiríks Guðmunds og geðleikhús

Á morgun kemur út skáldsagan Maríuklefinn, eftir Eirík Guðmundsonn rithöfund og útvarpsmann, en fullfrágengið handrit af bókinni fannst í fórum Eiríks eftir hann lést árið 2022. Þetta er bréfaskáldsaga þar sem bréfritari í Lissabon skrifar til ástarinnar sinar Maríu, hann skrifar um allt sem sækir á hugann, leiftur úr bókmenntum og mannkynssögunni og það sem verður á vegi ferðalangs á framandi slóðum.

Í tilefni af útgáfunni verður haldið málþing í Eddu á morgun þar sem vinir og fræðimenn varpa ljósi á feril Eiríks sem skáldsagnahöfundar, dagskrárgerðarmanns í útvarpi og fræðimanns. Við ræðum þetta við Jón Kalman Stefánsson rithöfund.

Jacob Levy Moreno lagði grunninn leikrænni geðmeðferð, sýkódrama, á fyrri hluta síðustu aldar en hann var frumkvöðull á sviði hópmeðferða í geðlækningum.

Trausti Ólafsson, leikhúsfræðingur tók diplómapróf í sýkódrama í Bretlandi árið 2003 og hefur reglulega síðan leitt hópa í geðleikhúsi. hefur hann skrifað bókina Geðleikhús Moreno - Lifandi skáldskapur í rými, þar sem hann fer yfir hugmyndafræði geðleikhússins og hvernig slíkar vinnulotur eru settar upp. Við ræðum við Trausta á heimili hans í Kópavogi.

Birt

2. sept. 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Lestin

Popp og pólitík

Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.

Þættir

,