Lestin

Konungssinnar í Kísildal #5 - Starfsneminn Marc Andreessen

Konungurinn lengi lifi, skrifaði Donald Trump um sjálfan sig á samfélagsmiðlum í gær.

Frá því hann tók við embætti forseta í Janúar hefur hann unnið því gjörbylta bandarísku stjórnkerfi og samfélagi með suðurafríska tæknimógúlinn Elon Musk sér við hlið.

Hugmyndirnar sem þeir styðjast í niðurrifinu og uppbyggingu hins nýja samfélags hafa lengi verið bruggast í tæknigeiranum - og þær eru róttækari en marga grunar.

Lýðræðið er komið á endastöð, og Bandaríkin þurfa snjallan forstjóra sem stýrir samfélaginu eins og sprotafyrirtæki. Það þarf byggja upp einveldi, nýtt konungsdæmi, segja jafnvel sumir.

Þessa dagana sökkvum við okkur ofan í þessar byltingarhugmyndir og hugsuðina á bakvið þær, konungssinnana í Kisildal.

Í þætti dagsins kynnum við okkur hugmyndir fjárfestisins Marc Andreessen. Marc hefur þangað til nýlega verið yfirlýstur demókrati en styður hann Trump. Hann tók þátt í því hjálpa Trump velja inn starfsfólk í nýju Trump-stjórnina og kallar sig ólaunaðan lærling hjá D.O.G.E. Hvað gerðist? Hverjar eru skoðanir Marc Andreessen, sem hefur stundum verið kallaður hugmyndafræðingur Kísildalsins?

Frumflutt

20. mars 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Lestin

Lestin

Popp og pólitík

Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.

Þættir

,