Beðið eftir Grand Theft Auto VI
Grand Theft Auto er einhver vinsælasta, söluhæsta, áhrifamesta og alræmdasta tölvuleikjasería heims. 19. Nóvember kemur GTA6 út, en það eru 13 ár frá siðasta leik og eftirvæntingin…
Lagið Midnight Sun með Zöru Larsson kom út í fyrra á samnefndri plötu, en nýtur enn þvílíkra vinsælda þetta sumarið. Við kryfjum þetta lag sænsku poppprinsessunar undir dyggri leiðsögn Friðriks Margrétar Guðmundssonar.
Svo fáum við pistil sendan með flugi frá París, Einar Már Jónsson, rithöfundur, segir frá merkum manni. Marc Bloch var afkastamikill fræðimaður en á miðjum aldri tók hann svo þátt í frönsku andspyrnuhreyfingunni. Hann á sér því merka ævi sem Einar Már rekur í þætti dagsins.

Popp og pólitík. Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.