Margir þekkja hina ævintýralegu fornbókaverslun Bókina, sem stendur á horni Klapparstígs og Hverfisgötu. Lestin heimsótti ræddi við eigandann, Ara Gísla Bragason, um breytingar sem hafa nýlega orðið á búðinni, bókakostinn og ferðamennina sem sækja mikið í búðina. Þá ræddum við einnig við gesti og gangandi og tókum púlsinn á stemningunni í þessari miðbæjarperlu.
Þessa dagana er hægt að sjá tvær nýjar en mjög ólíkar íslenskar myndir í kvikmyndahúsum - önnur er heimildarmynd um jökla og tengingar milli kynslóða, en hin er söngvamynd byggð á lögum Sálarinnar hans Jóns míns. Kolbeinn Rastrick rýnir í báðar myndirnar, Um tímann og vatnið og Hvar er draumurinn?
Íslenska svartmálmshljómsveitin Misþyrming hefur undanfarna mánuði ferðast milli tónlistarhátíða og leikið með einni stærstu stjörnu öfgarokkheimsins undanfarna áratugi, hinum pólska Nergal söngvara hljómsveitarinnar Behemoth. Saman hafa þeir leikið þrjátíu ára gamla plötu í heild sinni. Við fáum til okkar Dag Gíslason, forsprakka Misþyrmingar og ræðum um Sventevith.
Birt
10. sept. 2026
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lestin
Popp og pólitík
Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.