Minningar um Sókrates, Grammy-verðlaunahafinn Laufey
Íslendingar komust ekki á verðlaunapalla á Evrópumeistaramótina í handbolta sem lauk í gær en Grammy-verðlaunin voru haldin í gærkvöldi, og þar var Íslendingur sem sigraði. Laufey Lín og platan hennar Matter of Time var valin besta platan í flokki hefðbundinnar dægurtónlistar. Laufey vakti athygli fyrir þakkarræðu um tónlistarkennslu.
Á fimmtu öld fyrir krist var uppi í Grikklandi maður sem er í hugum flestra hálfgerð frummynd heimspekingsins. Sókrates var tötrum klæddur meinlætamaður sem hélt til á torgum Aþenu og tók þar fólk tali. Hann spurði það spurninga um hluti sem það átti að vita, en sneri því í hring, og sannfærði það fljótt um að í raun vissi það lítið sem ekkert. Hann var kaldhæðinn og ögrandi talaði um frummyndir og hellakenningar, og var að lokum dæmdur til dauða af samborgurum sínum. Þessa persónu þekkjum við Íslendingar fyrst og fremst í lýsingu nemanda hans Platóns, En Platón er ekki sá eini sem skrifaði um Sókrates. Nú í haust kom út í fyrsta skipti á íslensku, bók sem nefnist Minningar um Sókrates eftir forngríska sagnaritarann Xenófón. Við ræðum við Hjalta Snæ Ægisson, sem þýðir og gefur út bókina.
Frumflutt
2. feb. 2026
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lestin
Popp og pólitík
Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.