Pólitík á Berlinale, Hamnet gæti verið mynd ársins
Það er verið að rífast um Palestínu og pólitík á kvikmyndahátíðinni Berlinale. Það var þýski leikstjórinn Wim Wenders sem lét fyrstu umdeildu ummælin falla í þeirri rökræðu. Við rekjum atburðarrásina og um hvað er tekist á um.
Hamnet í leikstjórn Chloé Zhao gæti verið mynd ársins. Myndin er byggð á samnefndri bók eftir Maggie O'Farrel, sem er söguleg skáldsaga um sonarmissi Shakespeare og hvernig það varð kveikjan, sársaukinn, að harmleiknum Hamlet. Við ræðum þessa mynd í þaula við Ölmu Mjöll Ólafsdóttur, Helgu Dögg Ólafsdóttur og Kolfinnu Nikulásdóttur, sem voru snortnar yfir myndinni.
Birt
16. feb. 2026
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lestin
Popp og pólitík
Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.