Lestin

Adolescence, Spacestation, Hayao Miyazaki

Sjónvarpsþættirnir Adolescence, eða ungdómur, sem sýndir eru á Netflix eru mikið í umræðunni þessa dagana. Þetta eru fjölskyldudrama um stöðu ungra karlmanna í dag, týnda karlmenn sem falla auðveldlega í faðm eitraðra áhrifavalda. Brynja Hjálmsdóttir rýnir í þættina.

Við fáum líka sendingu frá Katrínu Helgu Ólafsdóttir, en hún er útsendari Lestarinnar á Heimildamyndahátíðinni Kaupmannahöfn, CPH DOX. Hún fór og nýja heimildarmynd um hinn magnaða japanska teiknimyndagerðarmann Hayao Miyazaki. Katrín segir frá myndinni og ævistarfi Miyazaki.

Davíð Roach Gunnarsson segir frá nýrri plötu, Reykjavík Syndrome, og útgáfutónleikum Spacestation sem fóru fram í síðustu viku.

Frumflutt

26. mars 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Lestin

Lestin

Popp og pólitík

Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.

Þættir

,