Askur Teiits, gervigreinar fjölmiðla, skemmdarverk í Feneyjum
Teitur Magnússon heimsækir Lestina og spjallar um nýja breiðskífu, Askur, sem kom út í september. Teitur hefur verið í eðalsveitum eins og Ojba Rasta, Fallegum mönnum og Slugs en hefur…
Í Lestinni í dag miðvikudaginn 19. Ágúst ætlum við að hrekjast um miðjarðarhafið undir lok bronsaldar með sjálfum Ódysseifi. The Odyssey eftir bandaríska leikstjórann Christopher Nolan hefur notið mikilla vinsælda í kvikmyndahúsum í sumar.
Myndin byggir á einu höfuðriti vestrænna bókmennta, Ódysseifskviðu sem eins og Illíónskviða er eignuð gríska skáldinu Hómeri - og hún var líklega rituð fyrir meira en 2700 árum en hafði áður varðveist í munnlegri geymd í einhverjar aldir.
Við ræðum við Svavar Hrafn Svavarsson prófessor og sérfræðing í heimspeki fornaldar um það hvort Nolan nái að fanga kjarna Ódysseifskviðu.

Popp og pólitík. Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.