Lestin

Heated Rivalry, íslenskur stríðsljósmyndari

Við rýnum í sjónvarpsþættina Heated Rivalry sem hafa notið mikilla vinsælda undanförnu - hómóerótísk ástarsaga á íshokkísvellinu. Þættirnir eru byggðir á bókaflokknum Game Changers eftir Rachel Reed og eru aðgengilegir á streymisveitu HBO. Brynja Hjálmsdóttir spjallar um þættina.

Við rifjum líka upp bíómynd um íshokkí sem naut mikilla vinsælda fyrir rúmlega 30 árum - en þar kom Ísland heldur betur við sögu.

Þorkell Þorkelsson er eini Íslendingurinn sem hefur markvisst ljósmyndað á stríðshrjáðum svæðum. Í janúar í fyrra deildi hann með okkur sinni reynslu af stríðs- og heimildaljósmyndun. Fagið hefur breyst mikið undanförnu enda hefur það miklu leyti færst úr höndum fagmanna á vegum stórra miðla yfir til fólksins sem býr sjálft við hörmungar aðstæður. Aðgengi okkar sem heima sitja, slíkum myndum hefur einnig breyst töluvert. Við endurflytjum samtal þeirra Þorkels og Önnu Gyðu Sigurgísladóttur.

Birt

24. mars 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Lestin

Popp og pólitík

Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.

Þættir

,