Lestin

Hið slor-móderníska ástand og menningarhátíðin Ulga/Fró

á dögum fer fram pólsk menningar- og listahátíð víða um borgina. Hátíðin ber nafnið Ulga, eða fró, og er markmiðið skapa rými fyrir fólk til koma saman, nærast og njóta menningar á afslappaðan hátt. Á meðal þess sem er um vera er hljóðganga um Sorpu og matarlist með einföldi i-i. Lestin settist niður með skipuleggjendum hátíðarinnar, þeim Ignacy Rybka, Katarzynu Strojnowsku og Weroniku Adamowsku á Bókasafni Kópavogs til forvitnast um málið.

Gervigreindarsmíðuð mynd sem lögreglan hefur prentað á límmiða og dreift til íslenskra skólabarna thefur vakið umtal í dag. Tveir brosandi lögregluþjónar og krúttlegur skógarbjörn í teiknimyndastíl öll merkt “Lógreglan.” Svona ódýrar og metnaðarlausar gervgreindarmyndir er það sem á ensku er kallað AI Slop en íslenska þýðingin gervigreindarslor er nokkurri útbreiðslu. Við pælum í hinu slor-móderníska ástandi í þætti dagsins.

Og ræðum í kjölfarið við Adam Flint grafískan hönnuð og lektor við listaháskóla Íslands um notkun gervigreindarmynda í pólitískri umræðu, slopaganda, sem er verða sífellt algengara. Hvernig notar Trump gervigreindina og hvernig birtist hún á samfélagsmiðlum í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar um ESB?

Birt

14. sept. 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Lestin

Popp og pólitík

Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.

Þættir

,