Lestin

Hvalreki, Playlistar, menningarauðmagn Höllu Tómasdóttur

Háhyrningur strandaði við Grafarvog í gærkvöldi og viðbragðsaðilar voru fljótlega komnir á staðinn. Þangað mætti líka Lóa Björk og fylgdist með björgunaraðgerðunum. Hún segir frá í Lest dagsins.

Við veltum því líka fyrir okkur hvernig fólk uppgötvar nýja og ferska tónlist í dag, hvort spilunarlistar á tónlistarveitum - bæði opinberir og heimagerðir - séu orðnir helsta vettvangi uppgötvunar. Við ræðum við nokkra eldheita tónlistarunnendur um playlista.

Af hverju var gert grín listaverkasmekk forseta Íslands í Áramótaskaupinu? Einar Hugi Böðvarsson veltir fyrir sér umræðum um Höllu Tómasdóttur út frá kenningum félagsfræðingsins Pierre Bourdieu.

Frumflutt

11. júní 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Lestin

Lestin

Popp og pólitík

Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.

Þættir

,