Lestin er í Epstein-skjölunum + Marty Supreme og Danska konan
Epstein-skjölin voru gerð aðgengileg af bandaríska dómsmálaráðuneytinu fyrir helgi. Það eru rúmlega þrjár milljónir nýrra skjala tengd auðkýfingnum og barnaníðingnum Jeffrey Epstein. Nafn Donalds Trumps Bandaríkjaforseta kemur fram minnst 4.500 sinnum í þessum skjólum. Fríða Þorkelsdóttir, bókmenntafræðingur er reglulegur gestur í Lestinni þar sem hún flytur fréttir af netinu. Og eitt af því sem vakti athygli Fríðu í Epstein-skjölunum er tenging við spjallborðið 4chan.
Borðtennis er góð íþrótt. En er hægt að gera taugatrekkjandi mynd um slíkt ping pong? Leikstjórin Josh Safdie og leikarinn Timothée Chalamet hafa gert heiðarlega tilraun með myndinni Marty Supreme. Kolbeinn Rastrick kvikmyndagagnrýnandi segir okkur hvernig til tókst.
Við ræðum svo sjónvarpsþættina Danska Konan eftir Benedikt Erlingsson. Þar leikur stórleikkonan Trine Dyrholm leyniþjónustukonu, hjúkrunarfræðing og hefndarengil sem hefur komið sér fyrir í venjulegri blokk í Hlíðunum til að bjarga heiminum. Brynja Hjálmsdóttir rýnir í þættina.
Frumflutt
3. feb. 2026
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lestin
Popp og pólitík
Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.