Er Trump fasisti? Wikipedia 25 ára, ævisaga Twitter
Er Trump fasisti? Af hverju gæti verið ó-gagnlegt að skilgreina hann sem slíkan? Pontus Järvstad, sagnfræðingur, er sérfræðingur í fasisma og and-fasisma, við ræðum við hann um Trump.
Fríða Þorkelsdóttir, rithöfundur og bóksali, er með hugan við X, áður Twitter. Og hvernig það hefur breyst. Við fáum pistil frá henni.
Jóhannes Bjarki ræðir við Salvöru Gissurardóttur, sem hefur skrifað greinar á íslenska Wikipedia í 20 ár. Í síðustu viku var þessi ristastóra, gríðarlega mikilvæga vefsíða, 25 ára gömul.
Birt
19. jan. 2026
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lestin
Popp og pólitík
Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.