Beðið eftir Grand Theft Auto VI
Grand Theft Auto er einhver vinsælasta, söluhæsta, áhrifamesta og alræmdasta tölvuleikjasería heims. 19. Nóvember kemur GTA6 út, en það eru 13 ár frá siðasta leik og eftirvæntingin…
Föstudaginn 12. júní var Lestin tekin upp í Klúbbi Listahátíðar í Iðnó. Við veltum fyrir okkur stöðu listarinnar í samtímanum - á tímum snjallsíma, samfélagsmiðla, gervigreindar, á tímum þegar lýðræðið á undir högg að sækja, á stríðstímum, verðbólgutímum, á tímum Trump og tækni-kapítalisma.
Getur listin sagt eitthvað nýtt og áhugavert um þessa tíma, getur hún haft einhver alvöru áhrif, þegar hún þarf stöðugt að keppa við alla aðra afþreyingu á netinu, á samfélagsmiðlum, í athyglishagkerfinu.
Við ræðum við tvo listamenn, Cristophe Meierhans og Mat Dryhurst.

Popp og pólitík. Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.