Alþjóðastofnanir ættu að koma á stöðugleika á Gaza, alvarleg mistök að atkvæði skiluðu sér ekki, Bárðarbunga
Utanríkisráðherra Bandaríkjanna segir að alþjóðastofnanir eiga að koma á stöðugleika á Gaza þegar vopnahlé næst. Ísraelar verði að sama skapi að viðurkenna að Palestínumenn sætti sig ekki við að vera réttindalaus þjóð á vergangi.
Dómsmálaráðherra segir alvarleg mistök hafa verið gerð þegar utankjörfundaratkvæði týndust. Fara verði ofan í saumana á málinu.
Bárðarbunga hefur lítið bært á sér eftir að jarðskjálftahrinu, sem hófst í morgun, lauk fyrir hádegi. Talið er líklegast að kvika sé að reyna að brjóta sér leið.
Erlendum ferðamönnum fjölgaði um 2,2 prósent í fyrra frá árinu áður. Aðeins einu sinni áður hafa komið fleiri erlendir ferðmenn hingað til lands. Ferðamálastjóri hefur áhyggjur af minnkandi áhuga breskra ferðamanna á landinu.