Kvöldfréttir útvarps

Bandaríkjaforseti sendir þjóðvarðlið til Washingtonborgar, Gaza, íkveikja á Akranesi og ættleiðingum frá útlöndum fækkkar

Forseti Bandaríkjanna ætlar senda þjóðvarðliða á götur Washington-borgar og setja lögregluna undir alríkisstjórn. Forsetinn segir þetta gert til heimta borgina úr höndum ribbalda og glæpalýðs en borgarstjórinn segir dregið hafi úr glæpum.

68 voru drepnir á Gaza í dag, og ísraelsk stjórnvöld hvika hvergi frá áformum um yfirtöku. Nærri 200 fréttamenn hafa fallið á Gaza frá því Ísraelsher réðst þar inn í október 2023.

Aðeins tvö börn hafa verið ættleidd hingað frá útlöndum síðan 2022. Framkvæmdastjóri Íslenskrar ættleiðingar segir erfitt tryggja fjármögnun fyrir rekstur félagsins þrátt fyrir mikið aðhald.

Ágangsfé sem étur sumarblóm og traðkar á leiðum í kirkjug veldur Flateyringum hugarangri og hefur gert lengi, en vegna framkvæmda við snjóflóðavarnargarða er ekki hægt girða fyrir för fjárins inn í bæinn.

Frumflutt

11. ágúst 2025

Aðgengilegt til

11. ágúst 2026
Kvöldfréttir útvarps

Kvöldfréttir útvarps

Fréttir

Þættir

,