Kvöldfréttir útvarps

Þyrlupall við nýjan Landspítala

Finna þarf lendingarstað fyrir sjúkraþyrlur nálægt nýjum Landspítala sem fyrst, segir heilbrigðisráðherra. Borgin hefur verið beðin um lóð fyrir þyrlupall við Umferðarmiðstöðina.

Guðrún Hafsteinsdóttir segist hafa lagt mikið á sig sem formaður til vera sameinandi afl Sjálfstæðismanna. Hún finnur þó fyrir ósætti innan flokksins hjá þeim sem hefðu viljað annan formann.

Þótt virkjun í Vatnsfirði þýddi aflétta eða breyta þyrfti friðlýsingu, telur bæjarráð Ísafjarðarbæjar áfram tilefni til skoða þar virkjunarkosti. Brýn þörf á uppbyggingu.

Tveir fulltrúar minnihlutans á Akureyri vænta þess sumarfrístundir verði í boði á vegum bæjarins næsta sumar. Foreldrar hafa kvartað yfir skorti á framboði í rúmt ár.

Sjötíu prósenta líkur eru á meðalhækkun hitastigs næstu fimm ára fari yfir einnar og hálfrar gráðu mörkin, sem sett voru með Parísarsáttmálanum. Þetta segir í nýrri skýrslu.

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segir mikilvægt Íslendingar komi ákvörðunum um aukinn varnarviðbúnað á norðurslóðum. Hún fundaði með Mark Rutte, framkvæmdastjóra Atlantshafsbandalagsins, í Brussel í dag.

Frumflutt

28. maí 2025

Aðgengilegt til

28. maí 2026
Kvöldfréttir útvarps

Kvöldfréttir útvarps

Fréttir

Þættir

,