Kvöldfréttir útvarps

Meirihlutaviðræður ganga vel og verkföll í Kópavogi

Viðræður um myndun nýs meirihluta í borgarstjórn Reykjavíkur hafa haldið áfram í dag, fundi oddvita lauk á sjötta tímanum. Við heyrum í oddvita Samfylkingarinnar.

Ótímabundin verkföll hefjast í öllum leikskólum í Kópavogi þriðja mars. Atkvæðagreiðslu kennara um verkfallsboðanir lauk í dag, boðuð eru verkföll í 22 leikskólum og fjórum grunnskólum.

Skólastjóri segir hafa komið til tals loka þurfi skólalóðum eftir nemendur fundu skotvopn á þaki Laugalækjarskóla í gærkvöld. Lögregla rannsakar málið.

Hamas hyggst leysa þrjá ísraelska gísla úr haldi á morgun og hefur sent ísraelskum stjórnvöldum nöfn þeirra. Hlé hafði verið gert á lausn gíslanna fyrr í vikunni vegna meintra brota Ísraela gegn skilmálum vopnahlés sem samið var um í janúar.

Frumflutt

14. feb. 2025

Aðgengilegt til

14. feb. 2026
Kvöldfréttir útvarps

Kvöldfréttir útvarps

Fréttir

Þættir

,