Tveir látnir eftir slys í Svíþjóð og breytt umhverfi eftir Rauðagerðis-málið
Þrír létust þegar strætisvagn keyrði inn í strætóskýli í Stokkhólmi síðdegis. Atvikið er rannsakað sem manndráp af gáleysi og ekki grunur um hryðjuverk.
Yfirmaður greiningardeildar ríkislögreglustjóra telur að eðlisbreyting hafi orðið hjá glæpasamtökum eftir Rauðagerðismálið fyrir fjórum árum. Eftir það sé allt orðið leyfilegt.
Hertar kröfur gera íslenskum læknum erfiðara að sækja sérnám á Norðurlöndum. Bæta þarf framboðið á Íslandi að sögn lækna.
Heilbrigðisráðherra viðrar þá hugmynd að seinka klukkunni í tilraunaskyni og leyfa svo þjóðinni að greiða atkvæði um málið. Þannig megi kveða ágreining um klukkuna í kútinn.