Kvöldfréttir útvarps

Kvöldfréttir 18. október 2025

Það er jákvætt fyrir forseta Kína þjóðin sjái hann í félagsskap forseta Íslands, segir sérfræðingur í varnarmálum. Móttökurnar í heimsókn Höllu Tómasdóttur hafi ekki verið tilviljun en það blasi ekki alltaf við hvað vakir fyrir kínverskum ráðamönnum.

Flokksþingi Framsóknarflokksins verður flýtt og haldið í febrúar þar sem forystan verður endurnýjuð. Sigurður Ingi Jóhannsson ætlar ekki gefa kost á sér áfram sem formaður.

Þúsundir hafa komið saman á fleiri en 2500 stöðum í Bandaríkjunum þar sem konungstilburðum Bandaríkjaforseta er mótmælt.

Icelandair hefur hliðrað áætlun til bregðast við boðuðu verkfalli flugumferðarstjóra. Forstjóri félagsins segir það ekki ganga fámennir hópar loki landinu.

Næsti íþróttaálfur gæti verið kona, karl eða kvár. Leitað er nýjum íþróttaálfi, sem höfundur Latabæjar segir mikilvægast gæddur manngæsku.

Frumflutt

18. okt. 2025

Aðgengilegt til

18. okt. 2026
Kvöldfréttir útvarps

Kvöldfréttir útvarps

Fréttir

Þættir

,