Vélfag stöðvar starfsemi og skiptar skoðanir um símabann
Stjórnendur Vélfags hafa stöðvað starfsemi fyrirtækisins tímabundið. Staða Vélfags hefur verið í óvissu síðan utanríkisráðuneytið lagði á það efnahagsþvinganir.
Dómsmálaráðherra segist ekki vera önugur ráðherra að fetta fingur út í eitthvað sem ekki er - með frumvarpi sínu um námsmannaleyfi. Hún sé að bregðast við upplýsingum sem henni hafi borist frá bæði Útlendingastofnun og Háskóla Íslands.
Símabann í skólum var til umræðu á Alþingi í dag. Sjálfstæðismenn hafa efasemdir um lögin og segja skólana sjálfa geta stýrt símanotkun nemenda sinna.