Kvöldfréttir útvarps

Ísland sniðgengur Eurovision, ferðafólk til Bandaríkjanna krafið um meiri upplýsingar, líkur á eldgosi og endalok Fjölskylduhjálpar

Ísland tekur ekki þátt í Eurovision í Vín í vor. Framkvæmdastjórn kynnti stjórn RÚV þessa ákvörðun á stjórnarfundi í dag. Óvíst er hvort Söngvakeppni sjónvarps verður haldin.

Ferðamenn á leið til Bandaríkjanna gætu þurft sýna allt sem þeir hafa gert á samfélagsmiðlum undanfarin fimm ár, ef áform heimavarnarráðuneytis Bandaríkjanna verða veruleika. Íslenskir ferðamenn yrðu ekki undanskildir.

Enn eru líkur á eldgosi á Sundhnúksgígaröðinni. Kvikusöfnun hefur verið stöðug síðustu vikur.

Síðasta jólaúthlutun Fjölskylduhjálpar á höfuðborgarsvæðinu er í næstu viku og verður starfsemin lögð niður um áramót. Matarúthlutunum verður þó haldið áfram í Reykjanesbæ út mars á næsta ári. Formaður segir stöðuna hryllilega.

Umsjón: Þorgils Jónsson og Ævar Örn Jósepsson

Tæknimaður: Mark Eldred

Stjórn útsendingar: Annalísa Hermannsdóttir

Frumflutt

10. des. 2025

Aðgengilegt til

10. des. 2026
Kvöldfréttir útvarps

Kvöldfréttir útvarps

Fréttir

Þættir

,