Kvöldfréttir útvarps

Uppsagnir hjá Play, Gaza, mótmæli og málningu skvett á ljósmyndara, Bandaríkin ú UNESCO, ánægja með 71. greinina og Ermarsundssund

Einni af hverjum tíu flugfreyjum og -þjónum hjá flugfélaginu Play var sagt upp í dag. Upplýsingafulltrúi félagsins segir breyttar áherslur kalli á fækkun starfsfólks.

Stjórnarmaður í Félaginu Ísland-Palestína segir ekkert þjóðarmorð hafi verið skrásett jafn nákvæmlega og það sem framið á Gaza. Aðgerðaleysi alþjóðasamfélagsins algjört.

Málningu var skvett á ljósmyndara Morgunblaðsins við mótmælin í dag. Skipuleggjendur harma það og segja slíkt ekki eiga rétt á sér. Formaður Blaðamannafélags Íslands segir það alvarlegt mál, þegar ráðist er á fjölmiðlafólk störfum.

Mikill meirihluti er ánægður með ákvörðun forseta Alþingis um stöðva umræðu um veiðigjaldsfrumvarpið og koma því til atkvæðagreiðslu.

Bandaríkjastjórn hefur sagt landið úr UNESCO - í annað sinn. Það var líka gert í fyrra skiptið þegar Donald Trump var forseti.

Sjósundkappinn Sigurgeir Svanbergsson hefur dvalið í Dover í Englandi síðustu daga og hefur sund sitt yfir Ermarsundið í fyrramálið ef allt gengur eftir.

Umsjón: Brynjólfur Þór Guðmundsson og Ævar Örn Jósepsson

Tæknimaður: Kári Guðmundsson

Stjórn útsendingar: Erna Sóley Ásgrímsdóttir

Frumflutt

22. júlí 2025

Aðgengilegt til

22. júlí 2026
Kvöldfréttir útvarps

Kvöldfréttir útvarps

Fréttir

Þættir

,