Kvöldfréttir útvarps

Allt í rugli eftir met-snjókomu á höfuðborgarsvæðinu

Umferð hefur verið úr skorðum á höfuðborgarsvæðinu í allan dag vegna veðurs og færðar. Fólk var hvatt til fara fyrr heim, en síðdegis voru appelsínugular viðvaranir afturkallaðar og líkur á ekki snjói meira á höfuðborgarsvæðinu í kvöld.

Snjóruðningsmaður segist aldrei hafa séð svo mikinn snjó á höfuðborgarsvæðinu í október.

Forsætisráðherra Ísraels hefur fyrirskipað harðar árásir á Gaza og sakar Hamas um brot á samkomulagi um vopnahlé.

Háar greiðslur ríkislögreglustjóra til ráðgjafarfyrirtækisins Intra eru mjög einkennilegar í ljósi sífellds niðurskurðar og aðhalds, segir formaður Landssambands lögreglumanna.

Leiðtogar þeirra ríkja Norðurlandanna sem eiga aðild Evrópusambandinu eru bjartsýnir á lán til Úkraínu með veði í frystum eignum Rússa í Evrópu verði samþykkt á leiðtogafundi ESB í desember.

Frumflutt

28. okt. 2025

Aðgengilegt til

28. okt. 2026
Kvöldfréttir útvarps

Kvöldfréttir útvarps

Fréttir

Þættir

,