Kvöldfréttir útvarps

Ítrekað varað við hættulegum föngum

Formaður Afstöðu segir það sorglegt ítrekað þurfi vara við ákveðnum einstaklingum sem vitað eru hættulegir og brjóti síðan af sér. Dómsmálaráðherra boðar frumvarp um öryggisráðstafanir.

Kári Stefánsson var látinn fara frá Íslenskri erfðagreiningu af strategískum ástæðum. Hann segir uppsögnina hafa verið fyrirvaralausa.

Reykjavíkurborg skilaði tæplega ellefu milljarða króna afgangi á síðasta ári - fulltrúar minnihluta og meirihluta takast á um ársreikningi borgarinnar sem birtur var í dag.

Kennarar í grunn- og framhaldsskólum hafa orðið varir við aukna niðrandi orðræðu meðal nemenda, og í sumum tilfellum foreldra, í hinsegin málefnum, dósent við faggreinakennslu í Háskóla Íslands telur mikilvægt bregðast við því.

Íslenski Eurovision-hópurinn er kominn til Sviss. VÆB-bræður lofa stærra og betra atriði á stóra sviðinu.

Frumflutt

2. maí 2025

Aðgengilegt til

2. maí 2026
Kvöldfréttir útvarps

Kvöldfréttir útvarps

Fréttir

Þættir

,