Kvöldfréttir útvarps

Kvöldfréttir 31. maí 2025

Kolmónoxíðeitrun, sem talin er hafa orsakað veikindi nokkurra einstaklinga í flugi, sem beint var til Keflavíkur í dag, getur verið banvæn. Mikið viðbragð var vegna komu vélarinnar enda ástæður veikindanna óljósar.

Hamas-samtökin ætla leysa tíu gísla úr haldi náist vopnahléssamkomulag við Ísrael. Þau leggja áherslu á varanlegt vopnahlé og flæði hjálpargagna verði tryggt.

Framkvæmdastjóri Samáls segir tvöföldun innflutningstolla Bandaríkjaforseta á ál og stál hafi lítil áhrif á íslenska framleiðslu, sem seld er til Evrópu.

Formaður Samtaka atvinnulífsins segir það vanhugsað fyrirhuguð lagasetning um kílómetragjald taki gildi í sumar. Betra samtal þurfi milli stjórnvalda og atvinnulífsins þegar kemur nýrri lagasetningu.

Í dag er allra síðasti séns fyrir notendur Facebook og Instagram andmæla því gögn þeirra verði notuð til þjálfa gervigreindarlíkan móðurfyrirtækisins Meta.

Frumflutt

31. maí 2025

Aðgengilegt til

31. maí 2026
Kvöldfréttir útvarps

Kvöldfréttir útvarps

Fréttir

Þættir

,