Fundur um framtíð Grænlands, vissu ekki að skemman var ónothæf
Sögulegum fundi um framtíð Grænlands er lokið í Washington. Herstyrkur Dana á Grænlandi verður aukinn frá og með deginum í dag.
Forsvarsmenn True North vissu ekki að skemman í Gufunesi, sem brann til kaldra kola á mánudag, hafði verið metin óhæf til afnota áður en samið var um leigu á henni.
Spretthópur sem falið var að meta árangur af verkefninu Kveikjum neistann klofnaði. Einn sagði sig frá störfum hópsins og annar skilaði séráliti.
Samtök atvinnulífsins fagna niðurstöðu í kjaradeilu flugumferðarstjóra og Isavia. Mestu máli skipti að hún feli í sér langtímasamning.
Netöryggissveitin CERT-IS stefnir að opnun nýrrar vaktstöðvar á næsta ári. Þar verður sólarhringsvöktun til að tryggja skjót viðbrögð við netógnum.