Bandaríkjaforseti hótar að setja tolla á þau ríki sem leggjast gegn innlimun Grænlands.
Ráðherrum Viðreisnar er brugðið yfir máli Guðbrands Einarssonar, þingmanns flokksins. Guðbrandur sagði af sér þingmennsku vegna tilraunar til vændiskaupa. Lögregla fæst reglulega við slík mál.
Atvinnuvegaráðuneytið er ósammála áliti umboðsmanns Alþingis að málsmeðferðartími vegna umsóknar um leyfi til hvalveiða árið 2024 hafi verið of langur. Ráðherra segir að þegar hafi verið brugðist við með nýju leyfi og ekki ástæða til að aðhafast frekar.
Og 2.500 íslenskir stuðningsmenn hvetja landsliðið í handbolta til dáða af áhorfendapöllunum í Kristjanstad Arena þar sem liðið leikur sinn fyrsta leik á Evrópumóti gegn ítalíu.