Trump ítrekar aftur hótanir sínar og Ísland mætir Ungverjum
Mikil spenna hefur ríkt á Alþjóðaefnahagsþinginu í Davos í Sviss í dag. Bandaríkjaforseti kveðst áfram staðráðinn í að taka yfir Grænland og að án hans væri Atlantshafs-bandalagið úr sögunni.
Bandaríska þinginu hefur ekki tekist að standa upp-i í hárinu á Donald Trump fyrsta árið eftir að hann sneri aftur í Hvíta húsið, segir Silja Bára Ómarsdóttir, rektor og sérfræðingur í bandarískum stjórnmálum.
Margir bílar eru óökufærir eftir árekstra í mikilli hálku á höfuðborgarsvæðinu í dag.
Það styttist í úrslitaleik Íslands og Ungverjalands um efsta sæti F-riðils á Evrópumótinu í handbolta. Hundruðum flugsæta hefur verið bætt við til þess að koma íslenskum stuðningsmönnum til Svíþjóðar.