Þríhliða viðræður Rússlands, Úkraínu og Bandaríkjanna eru hafnar í Abu Dhabi og búist er við því að þær standi yfir í tvo daga.
Ísland á enn möguleika á að komast í undanúrslit á Evrópumóti karla í handbolta, þrátt fyrir eins marks tap gegn Króatíu í dag. Til þess þarf liðið að leggja Svía á þeirra heimavelli á sunnudag.
Mannréttindaráð Sameinuðu þjóðanna lýsir þungum áhyggjum af mannréttindabrotum í Íran. Ályktun þess efnis var samþykkt á aukafundi í dag, sem Ísland átti frumkvæði að.
Þjófar stálu öllum gripum úr silfursafni í Hollandi í vikunni. Stjórnarformaður safnsins vonar að þjófarnir grípi ekki til þess ráðs að bræða silfrið.